Nú er komið að hinni árlegu eyjaferð. Mæting er í Eirbergi laugardaginn 16. september kl.10:00 þaðan sem haldið verður til Þorlákshafnar og siglt í dallinum yfir í eyjuna fögru. Gist verður í skátaheimilinu í hjarta bæjarins. Seinnipartinn er okkur svo boðið í vísindaferð á sjúkrahúsið. Um kvöldið munum við svo mæta galvösk í Höllina þar sem hin eina sanna SÁLIN HANS JÓNS MÍNS mun halda uppi brjálaðri stemningu eins og þeim einum er lagið. Áætluð koma í Eirberg er um kl. 20 á sunnudagskvöldinu.
Skráning verður eins og þegar þið skráið ykkur í vísindaferðir á netinu og svo borgið þið í gegnum heimabanka inn á reikning 0311-26-100000 kt. 550185-0599 munið svo að senda kvittun á curator@hi.is
ATH. þið sem er í KBnámsmenn verðið að borga í heimabanka KB
Verð:
Curatormeðlimir 3990
Curator+KBnámsmenn 3490
Aðrir 6000
Innifalið í verði er rútuferðir, sigling, sund, gisting og ball.
Tekið af http://www.hi.is/pub/hjuknem/
Jæja þarna hafiði aðeins betri upplýsingar! Hvað segiði - eigum við að mála bæinn rauðan???
Kv KB
Eyjar!!!!!!!!
Er einhver stemmari fyrir sveittu eyjasálarballi??
Jebb farið verður á laugardag - komment????
Kv Kristín
Hvađ ert ţú ađ gera hér? Áttu ekki ađ vera ađ lćra?!
Alveg eins og myndirnar ykkar bara frá öðru sjónarhorni hehehhe
Ætla svo að setja inn myndirnar frá djamminu 2.septRagga
Myndir Myndir
Njótið vel...
Dúnna hjúkkuskvís
Stelpurnar...
jamms henni tókst að koma á fætur þessari mega flottu síðu 
Við verðum svo bara að vera alveg ógi duglegar að vera virkar hér og skella inn myndum af tjúttinu okkar, öðru skemmtilegu og texta hér og þar og inn á milli... hehe havita soldið sona lifandi skiljiði!!
Allavena ætla að vera fyrst til að skella inn myndum af okkar fyrstu vísindaferð í ár og náttlega jammsins sem fylgdi henni

Þetta var náttlega bara snilldar tjútt í alla staði og get ég ekki beðið eftir næsta hittingi... spurning um að fara að koma þemum í þessi partý okkar... ææ bara svona þar sem við erum alltaf að og erfitt verður að fara að þekkja tjúttin okkar í sundur... hahaha!!
En allavena geggjað kveld hjá okkur og þakka ég ykkur elskunum fyrir að hafa gert það að því sem það var... tær snilld

En já ætla að henda inn nokkrum myndum og virkja um leið þessa geðveiku síðu

Og stelpur ekki gleyma að kommenta..!!






